Hagnaður Arion banka nam 12,6 milljörðum í fyrra 4. mars 2011 13:49
Hagnaður Arion banka á árinu 2010 nam 12,6 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 12,9 milljarða á árinu 2009. Þetta kemur fram í tilkynningu um uppgjörið. Þar segir að arðsemi eigin fjár var 13,4% á árinu. Eiginfjárhlutfall bankans styrktist um 5,3 prósentustig milli ára og var 19% í árslok 2010 sem er vel yfir mörkum FME. Heildareignir námu 812,6 milljörðum kr., samanborið við 757,3 milljarða kr. í lok árs 2009. Eigið fé bankans í árslok 2010 var 109,5 milljörðum kr. en nam 90,0 milljörðum kr. í árslok 2009. „Afkoma ársins 2010 er góð og í samræmi við áætlanir. Arðsemi eigin fjár er vel viðunandi í krefjandi umhverfi. Árið einkenndist að miklu leyti af úrvinnslu í skuldamálum heimila og fyrirtækja. Bankinn hefur náð góðum árangri í þessu mikilvæga verkefni og ætlum við að ljúka úrlausnarmálum á árinu 2011,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka. „Góður framgangur í úrlausnarmálum felur í sér að óvissuþáttum fækkar og gæði efnahagsreiknings bankans aukast. Grunnrekstur bankans styrktist á árinu og er ég þess fullviss að bankinn er nú vel í stakk búinn til að takast á við þær áskoranir sem framundan eru. Ég lít svo á að á árinu 2009 hafi verið róinn lífróður, en á árinu 2010 hafi náðst stöðugleiki í rekstur bankans og góður árangur í úrvinnslumálum. Jafnframt var stefna bankans til framtíðar mörkuð og skipulag aðlagað. Á árinu 2011 mun úrvinnslumálum ljúka og hefðbundnari bankastarfsemi tekur við sér. Við erum bjartsýn á að á árinu 2012 muni efnahagslífið hafa náð vopnum sínum á ný."
Mest lesið Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Viðskipti innlent María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Viðskipti innlent Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Neytendur Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Viðskipti innlent Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Fleiri fréttir Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Sjá meira