Skoðun

Betri stjórnmál

Eysteinn Eyjólfsson skrifar
Fyrir landsfundi Samfylkingarinnar, sem haldinn verður 21.-23. október nk., liggja umfangsmiklar tillögur sem fela í sér grundvallar endurskipulagningu á starfi flokksins.

Tillögurnar eru afrakstur eins og hálfs árs umbótastarfs innan Samfylkingarinnar sem hófst skipulega í kjölfar útkomu skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis í apríl 2010 og tók vinnuferlið m.a. mið af niðurstöðum skýrslunnar. Flokkurinn skipaði eigin umbótanefnd sem skilaði í desember 2010 ítarlegri greiningu og umbótatillögum sem ræddar voru á fundum í öllum aðildarfélögum um allt land. Afrakstur þessa mikla starfs liggur nú fyrir landsfundi til umræðu og afgreiðslu.

Tekið er á öllum lykilþáttum í flokksstarfinu í tillögunum. Þær stuðla að auknum áhrifum flokksmanna með virkara lýðræði í flokknum, öflugra málefnastarfi, sterkari og áhrifameiri aðildarfélögum, skilvirkara flokksskipulagi og vinnubrögðum, virkari tengslum flokksforystu og félagsmanna og auknu samtali og samráði Samfylkingarfólks í þéttbýli og á landsbyggðinni.

Fyrir landsfundinum liggja m.a. tillögur um skipan þriggja manna sátta- og siðanefndar Samfylkingarinnar, tillaga að siðareglum sem ráðherrum, þingmönnum, sveitarstjórnarfulltrúum og öðrum sem starfa í nafni Samfylkingarinnar beri að hafa í heiðri í störfum sínum, tillaga að skuldbindandi reglum um aðferðir við val á framboðslista, sem fela m.a. í sér að opnum prófkjörum verði hætt og tillaga um skýrari reglur um fjármál flokksins og frambjóðenda hans.

Framkvæmdastjórn flokksins leggur fyrir landsfundinn vel á fimmta tug lagabreytingatillagna byggða á umbótastarfinu og tillögum laganefndar. Auk þess liggja fyrir landsfundinum tillögur að ályktunum málefnanefnda, afrakstur metnaðarfulls málefnastarfs sem hundruð flokksmanna hafa unnið að af krafti frá áramótum. Tillögurnar eru nú til umræðu í aðildarfélögunum flokksins, eins og aðrar tillögur sem liggja fyrir landsfundinum, svo tryggja megi vandaðri vinnu á landsfundi og betri stjórnmál en rík krafa var um slíkt af hendi flokksmanna.

Jafnaðarmönnum, og öðrum áhugamönnum um betri stjórnmál, er bent á að kynna sér tillögurnar á landsfundur.is.




Skoðun

Sjá meira


×