Kísilfélagi tókst ekki að uppfylla fyrirvara 20. júní 2011 19:45
Íslenska kísilfélaginu, sem hyggst reisa kísilver í Helguvík, tókst ekki fyrir tilskilinn frest þann 15. júní að uppfylla fyrirvara sem voru í samningum um verkefnið og hefur neyðst til að biðja um lengri frest. Ekkert bólar á framkvæmdum. Undirritun samninganna um kísilverið fyrir fjórum mánuðum lýsti bæjarstjóri Reykjanesbæjar sem upphafi umskipta á Suðurnesjum og fjármálaráðherrann sagði samningana mikilvæg skilaboð um að menn hefðu trú á framtíðinni á Íslandi. Samningarnir voru hins vegar undirritaðir með fyrirvörum, meðal annars um að Íslenska kísilfélaginu tækist að fjármagna verkefnið fyrir 15. júní, en gert var ráð fyrir að framkvæmdir á lóð fyrirtækisins væru komnar á fullt fyrir mitt sumar. Þar er hins vegar ekkert ennþá farið að gerast. Magnús Garðarsson, forstjóri Íslenska kísilfélagsins, staðfestir að ekki hafi tekist að uppfylla alla fyrirvara fyrir 15. júní og að félagið hafi samið um nýjar dagsetningar. Hann vill hins vegar ekki greina frá ástæðu þess að ekki tókst að uppfylla fyrirvarana né hve langan viðbótarfrest félagið hefur fengið. Magnús vonast þó til að verkefnið verði ekki nema þremur vikum á eftir áætlun.
Mest lesið Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Fleiri fréttir Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Sjá meira