Skattlagning á rafbókum er byggð á misskilningi 25. júní 2011 07:30 Lítið læsi í Búlgaríu kom Fergal Tobin, formanni Samtaka evrópskra bókaútgefenda, á óvart. Hann telur mikilvægt að lækka álögur hins opinbera á bækur óháð útgáfuformi þeirra. Mynd/GVA
Allar bækur, á hvaða formi sem þær eru, jafnt prentaðar sem rafrænar, eiga að bera lægsta mögulega virðisaukaskatt sem völ er á. Þetta segir Fergal Tobin, formaður Samtaka evrópskra bókaútgefenda, hagsmunasamtaka forleggjara innan aðildarríkja Evrópusambandsins og landa sem aðild eiga að Evrópska efnahagssvæðinu, EES. Tobin er staddur hér á landi um helgina í tengslum við sumarfund samtakanna. Meginviðfangsefni fundarins er tillögur sem aðildarfélögin í ýmsum löndum ESB leggja til um lækkun á virðisaukaskatti á bækur. Virðisaukaskattur á bækur er mishár innan ESB-ríkjanna. Alla jafna eru þær undanþegnar almennum virðisaukaskatti eins og hér. Í Noregi, Bretlandi, Írlandi og Póllandi er enginn virðisaukaskattur á bókum. Undantekningin er Danmörk og Búlgaría, en þar er hæsta álagning sett á prentaðar bækur. Öðru máli gegnir hins vegar um rafrænar bækur; þær bera hæstu álagningu hins opinbera í öllum aðildarríkjum ESB. Ástæðan fyrir því er sú að rafbækur eru flokkaðar með tölvuvörum. Tobin segir það mjög undarlegt og í raun byggjast á misskilningi á eðli bóka: „Bækur eru ólíkar öðrum vörum; þær miðla upplýsingum, uppfræða lesendur um allt á milli himins og jarðar, svo sem viðskipti og stjórnmál, og nýtast sem kennslutæki. Innihaldið er ætíð það sama, óháð því á hvaða formi bækur eru gefnar út,“ segir hann. Viðræður hafa staðið yfir við ráðamenn hjá ESB um málið og eru þær komnar skammt á veg. Hann segir þetta mikilvægt mál nú, ekki síst þar sem kreppan hafi dregið úr kaupmætti fólks í Evrópu og bóksala dregist saman. Eitt af verkefnum Tobins á fundinum hér verður að ræða við fulltrúa bókaútgefenda frá Búlgaríu. Hagkerfi landsins er mjög óburðugt, fátækt mikil og bóksala dræm. „Það kom mér á óvart að í sumum hlutum landsins er aðeins helmingur íbúanna læs. Ég get ekki sagt að það séu bein tengsl á milli þess og álagningar á bækur. En við munum ræða við stjórnvöld í Búlgaríu og leggja til að skatturinn verði lækkaður,“ segir Tobin. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira