Spáir því að verðbólgan aukist í 3,2% í maí 17. maí 2011 08:24
Greining MP Banka gerir ráð fyrir að vísitala neysluverðs mælist 0,8% hærri í maí en í apríl. Gangi það eftir eykst 12 mánaða verðbólga úr 2,8% og í 3,2%. Þetta kemur fram í Markaðsvísi greiningarinnar. Þar segir að tæpur helmingur hækkunarinnar í mánuðinum stafar af tveimur þáttum. Annars vegar gjaldskrárhækkun Orkuveitunnar sem tekur gildi í maí og hins vegar leiðréttingu á vísitölu byggingarkostnaðar. Þessir tveir þættir valda um 0,35% hækkun vísitölunnar í mánuðinum. Gengi krónunnar hefur gefið aðeins eftir frá síðasta mánuði. Það hefur áhrif á innflutningsverð og meðal annars hefur bílverð hækkað nokkuð í mánuðinum. Fasteignaverð virðist enn á uppleið en það hefur hækkað um 2% síðustu þrjá mánuði. Á móti því kemur vaxtalækkun á fasteignalánum en sumir bankar hafa fylgt Íbúðalánasjóði eftir og lækkað vexti íbúðalána hjá sér. „Við reiknum þó með að verðhækkanir vegi enn þyngra og reiknuð húsaleiga hækki í mánuðinum,“ segir í Markaðsvísinum. „Við eigum frekar von á að 12 mánaða hækkun VNV haldi áfram að aukast að minnsta kosti næstu 4 mánuði. Í júní og júlí í fyrra lækkað VNV um samtals 1% og hækkunin næstu tvo mánuði þar á eftir nam alls 0,2%. Verðbólguþrýstingur vegna hækkandi launa og hugsanlega veikari krónu má ekki vera mikill ef verðbólga á að haldast innan við 4% fram á haustið.“
Mest lesið Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Sjá meira