Flogið til Washington út árið 17. maí 2011 10:18
Icelandair hefur í dag áætlunarflug til Washington, höfuðborgar Bandaríkjanna. Flugáætlunin til borgarinnar hefur verið framlengd út árið og 70 flugum bætt við yfir haust- og vetrarmánuðina, að því er fram kemur í tilkynningu frá Icelandair. „Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, verður þátttakandi í fyrsta fluginu og í dagskrá á vegum Icelandair og Washingtonborgar við komuna vestur um haf í kvöld og á morgun,“ segir ennfremur. „Upphaflega var áætlað að fljúga til og frá Washington í sumar frá 17. maí til 13. september en í apríl tilkynnti Icelandair um framlengingu flugsins um rúman mánuð og jafnframt var flugum fjölgað úr fjórum á viku í fimm flug á viku í júlí og ágúst í sumar. Nú hefur verið ákveðið að Washingtonflugið verði fjórum sinnum í viku til 8. janúar 2012 og hefjist síðan aftur af krafti þann 27. mars.“ „Við sjáum þarna tækifæri til vaxtar yfir vetrarmánuðina og erum að bregðast við sterkari eftirspurn en við gerðum ráð fyrir", segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair. Að sögn Birkis er lögð mikil áhersla á að efla íslensku ferðaþjónustuna yfir vetrarmánuðina. „Hér erum við að bæta verulega í framboð okkar utan háannatímans og ætlum okkur með þessari viðbót að fjölga ferðamönnum til landsins um nokkur þúsund. Þetta aukna flug til Washington styrkir einnig flug milli Íslands og Evrópu vegna tengiflugs um Keflavíkurflugvöll og kallar því á aukið framboð á Evrópuleiðum Icelandair." Auk þeirra 70 ferða til Washington sem bætt er við verður flugi bætt til Evrópuborga, þannig að í tengslum við þessa aukningu fjölgar flugum um rúmlega 80 í vetur frá sem áætlað var. „Við stefnum að því að byggja þennan áfangastað upp sem heilsársstað. Við þekkjum vel til flug- og ferðamannamarkaðarins á Washingtonsvæðinu og ætlum okkur að ná töluverðum fjölda ferðamanna til Íslands þaðan og munum auk þess bjóða upp á góðar tengingar í gegnum Keflavíkurflugvöll milli Washington og margra Evrópuborga. Þá er Washington einn vinsælasti áfangastaður í Bandaríkjunum fyrir íslenska ferðamenn enda höfuðborg landsins og margt þar að sjá og upplifa", segir Birkir. Icelandair mun fljúga til og frá Dulles flugvellinum sem er alþjóðaflugvöllur Washingtonborgar Washington er áttunda borgin sem Icelandair flýgur áætlunarflug til í Norður Ameríku. Hinar borgirnar eru New York, Boston, Seattle, Minneapolis og Orlando í Bandaríkjunum, og Toronto og Halifax í Kanada. Í sumar flýgur Icelandair 53 flug vikulega til Norður Ameríku, mun fleiri en önnur flugfélög á norðurlöndum.
Mest lesið Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Innlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Sjá meira