Tæpir fjórtán milljarðar í afgang hjá borginni 17. maí 2011 15:21
Afkoma borgarsjóðs á síðasta ári var mun betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Ársreikningur borgarinnar var lagður fram á borgarstjórnarfundi í dag. Í tilkynningu frá borginni segir að viðsnúningurinn sé umtalsverður en rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B- hluta, er jákvæð um 13.7 milljarða. „Rekstrarniðurstaða Aðalsjóðs, sem hefur með hinn almenna rekstur borgarinnar að gera, var jákvæð um 803 mkr en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir að niðurstaðan yrði neikvæð um 2.369 mkr. Niðurstaðan var því um 3.171 mkr betri en áætlað var. Þetta skýrist einkum af því að skatttekjur voru umfram áætlun, gjaldfærsla vegna breytingar lífeyrisskuldbindingar og húsaleigubætur voru undir áætlun og fagsviðin héldu sig innan fjárheimilda að mestu þrátt fyrir þungar hagræðingarkröfur," segir í tilkynningu. „Rekstrarniðurstaða Eignasjóðs var jákvæð um 670 mkr, en áætlun gerði ráð fyrir 2.264 mkr hagnaði . Frávik frá áætlun er því 1.594 mkr, sem skýrist einkum af niðurfærslu krafna að fjárhæð 1.147 mkr og breyttum reikningsskilaaðferðum vegna leiguskuldbindinga sem ekki var áætlað fyrir. Viðbótargjaldfærslur vegna þeirra nema 420 mkr," segir ennfremur. „Rekstrarniðurstaða A-hluta, sem er sameiginleg niðurstaða fyrir Aðalsjóð og Eignasjóð, var því jákvæð um 1.472 mkr en endurskoðuð áætlun gerði ráð fyrir að niðurstaðan yrði neikvæð um 105 mkr. Niðurstaðan er því 1.577 mkr betri en gert var ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða A-hluta fyrir fjármagnsliði var neikvæð um 218 mkr en áætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 1.855 mkr. Niðurstaðan var því 1.637 mkr betri en áætlun gerði ráð fyrir."Hærri útsvarstekjur en gert var ráð fyrir Í tilkynningunni segir að góða afkomu A-hluta megi einkum rekja til hærri útsvarstekna en áætlaðar voru sem skýrist af meiri launahækkunum og áhrifum úttektar á séreignarsparnaði. Þá voru tekjur af fasteignagjöldum vanáætlaðar um rúmlega 800 mkr þar sem álagningarstofn lá ekki fyrir við gerð áætlunar. Rekstrarútgjöld reyndust hins vegar um 1.100 mkr hærri en áætlað var. Árið 2009 var rekstrarniðurstaða A- og B- hluta neikvæð um 1.650 mkr. „Þessi viðsnúningur skýrist einkum af auknum tekjum A-hluta og gengishagnaði í samstæðunni. Fjármagnsliður var neikvæður um 12.655 mkr árið 2009 en er nú jákvæður um 10.505 mkr. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar jókst á milli ára, fer úr 26,4% árið 2009 í 30,8% árið 2010. Skuldsetningarhlutfall fer úr 239% árið 2009 í 191% árið 2010."
Mest lesið Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Sjá meira