Hanna Birna: Meirihlutinn ræður ekki við þetta stóra verkefni 17. maí 2011 17:44 Hanna Birna Kristjánsdóttir Mynd/Vilhelm
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins segja að rúmlega 14 milljarða rekstrarafgangur borgarsjóðs fyrir árið 2010 endurspegli góðan rekstrarárangur sem byggi á síðustu fjárhagsáætlun og vinnu fyrri meirihluta undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Borgarfulltrúarnir segja að ekki hafi þurft að grípa til þeirra gjaldskrár- og skattahækkana sem núverandi meirihluti ákvað um síðustu mánaðarmót. Eins kom fram á Vísi fyrir í dag var tæplega 1,5 milljarða afgangur á rekstri borgarsjóðs og tæplega 13,7 milljarða hagnaður hjá samstæðu Reykjavíkurborgar. Hanna Birna Kristjánsdóttir, fulltrúi sjálfstæðismanna í borgarstjórn, segir í tilkynningu að sú aðgerðaáætlun og vinna sem Sjálfstæðisflokkurinn setti af stað í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008 er enn að skila sér í jákvæðri rekstrarniðurstöðu ársreiknings 2010. „Niðurstaðan af síðustu fjárhagsáætlun fyrri meirihluta er afar góð og hrekur málflutning núverandi meirihluta um svo erfiða stöðu að umfangsmiklar skatta- og gjaldskrárhækkanir séu óumflýjanlegar, samhliða illa ígrunduðum skólasameiningum í viðkvæmustu þjónustu borgarinnar." Hún segir að ársreikningurinn fyrir árið 2010 sýni þvert á móti að að nú líkt og undanfarin ár sé hægt að standa með íbúm við erfiðar aðstæður og standa vörð um grunnþjónustuna, án þess að hækka alla skatta og gjöld. „Meirihlutinn hefur hins vegar hvorki haft vilja né getur til að fara þessa farsælu leið, heldur kýs leið ríkisstjórnarinnar og forgangsraðar markvisst í þágu kerfisins á kostnað fólksins," segir Hanna Birna. „Þessi ársreikningur staðfestir að með því að gjörbreyta þeirri stefnu sem fyrri borgarstjórn fylgdi og hefur ítrekað skilað borgarsjóði og borgarbúum miklum árangri, hefur núverandi meirihluti tekið ranga ákvörðun. Borgarsjóður hefur alla burði til að leyfa borgarbúum að njóta árangurs þessa aðhalds eins og við gerðum á sínum tíma í stað þess að halda því að íbúum að verkefnið sé svo erfitt að það þurfi stöðugt að láta þá greiða meira bæði í formi hærri skatta og gjalda, en einnig með því að valda óvissu og uppnámi í kringum viðkvæmustu grunnþjónustu borgarinnar. Það er vond þróun og ber vott um að meirihlutinn ræður ekki við þetta stóra verkefni."
Mest lesið Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fleiri fréttir Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Sjá meira