Gagnaveitan ekki á sölulista Orkuveitunnar Símon Birgisson skrifar 19. ágúst 2011 19:30
Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur telur hagsmunum fyrirtækisins best borgið með því að selja Gagnaveitu Reykjavíkur. Fulltrúi Sjálfstæðismanna í stjórn Orkuveitunnar telur ómögulegt að koma fyrirtækinu á kjöl án þess að Gagnaveitan verði seld. Mótun eigendastefnu Orkuveitunnar er nú að ljúka en frestur til að skila inn athugasemdum rennur út á mánudaginn. Vilji er meðal helstu stjórnenda Orkuveitunnar að selja Gagnaveitu Reykjavíkur, eina verðmætustu eign Orkuveitunnar. „Vissulega er gagnaveitan ein stærsta eign utan hefðbundinnar kjarnastarfsemi orkuveitunnar en hún er enn flokkuð sem kjarnastarfsemi og því ekki á sölulista," segir Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur en Kjartan Magnússon, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn orkuveitunnar lagði á fundi stjórnarinnar í vor fram tillögu um að gagnaveitan yrði seld. Þeirri tillögu var vísað til eigendanefndar Orkuveitunnar þar sem ákvörðunin um söluna er pólitísk. „En það er alveg ljóst í mínum huga að ef orkuveitan á að ná því markmiði að selja eignir fyrir tíu milljarða króna á næstu árum verði gagnaveitan að seljast þar með. Það er í raun ekki hægt að ná því markmiðið nema með því að selja gagnaveituna. Held það sé ekki gerlegt. Nema með því að selja innviði úr Orkuveitunni sem ég vona að sé ekki ætlunin," segir Kjartan. Haraldur segir sölu gagnaveitunnar ekki í pólitískri herkví. „Það vil ég ekki meina. Það er verið að fjalla um það á pólitískum vettvangi og þetta sýnir að hlutirnir ganga rétt fyrir sig," Haraldur Flosi. „En auðvitað væri það mikill fengur að geta sett hana í sölumeðferð til að styrkja þessa áætlun," bætir Haraldur við. „Þú myndir vilja selja?" „Ég myndi skoða það jákvæðum augum," svarar Haraldur að lokum.
Mest lesið Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Sjá meira