Jón Gunnar nýr forstjóri Bankasýslunnar 30. desember 2011 19:41 Jón Gunnar Jónsson er nýr forstjóri Bankasýslunnar. samtsett mynd/Vísir
Stjórn Bankasýslu ríkisins hefur ráðið Jón Gunnar Jónsson sem nýjan forstjóra Bankasýslunnar. Ný stjórn var skipuð af fjármálaráðherra 3. nóvember síðastliðinn og var starfið síðan auglýst laust til umsóknar 9 dögum síðar. Sautján umsóknir bárust en fjórir umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka. Jón Gunnar starfaði hjá fjárfestingarbankanum Merrill Lynch í New York 1992-1996, í Hong Kong 1996-2001 og í London 2001-2008, við útboð og greiningu á skuldabréfum, greiningu á skuldatryggingum, fjármögnun á yfirtökum og fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja, og sat í stjórn MP banka (EA fjárfestingarfélags) frá 2010-2011, þar sem hann tók þátt í endurskipulagningu bankans. Hann er með LL.M. gráðu í lög- og hagfræði frá Università di Bologna og Universität Hamburg, þar sem hann skrifaði meistararitgerð um fjárhagsskipan banka, og B.S. gráðu frá Cornell University, School of Hotel Administration, í Íþöku, New York fylki. „Stjórn Bankasýslu ríkisins skipaði hæfnisnefnd vegna umsóknarferlisins þann 18.11.2011. Nefndin mótaði vinnuferli fyrir mat á umsækjendum sem lagt var fyrir stjórn til samþykktar og hefur verið birt á heimasíðu Bankasýslunnar. Nefndin framkvæmdi í kjölfarið mat á hæfni umsækjenda skv. þessu vinnuferli og var m.a. tekið mið af hæfismati FME fyrir stjórnendur og stjórnarmenn fjármálafyrirtækja. Mat nefndarinnar á þremur hæfustu umsækjendunum var lagt fyrir stjórn Bankasýslunnar sem tók ákvörðun um ráðningu að loknum viðtölum við þá umsækjendur," segir í tilkynningu frá Bankasýslu ríkisins.
Mest lesið Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Sjá meira