Kröfuhafar nálgast Hannes 20. desember 2011 08:00
FI fjárfestingar ehf., félag í eigu Hannesar Smárasonar, var tekið til gjaldþrotaskipta á föstudag. Í kjölfarið mun skilanefnd Glitnis geta krafið Hannes um 400 milljónir króna vegna sjálfskuldarábyrgðar sem hann gekkst undir þegar FI fjárfestingar, sem hétu áður Fjárfestingafélagið Primus ehf., fékk tvö kúlulán hjá bankanum í lok árs 2007. Lánin standa nú í um 4,7 milljörðum króna. Skilanefnd Glitnis höfðaði mál á hendur Hannesi og félaginu vegna lánanna tveggja. Í febrúar var félaginu gert að greiða skilanefndinni 4,7 milljarða króna vegna þessa. Dómurinn staðfesti auk þess fyrsta veðrétt í atvinnuhúsnæði Hannesar að Faxafeni 12 og fimm sumarbústaðalóðum sem hann átti við Illagil í Grafningi. Héraðsdómur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að Hannesi bæri ekki að greiða sjálfskuldarábyrgðina „að svo stöddu". Því var ekki hægt að innheimta hana fyrr en fasteignin og sumarbústaðalóðirnar yrðu seldar á uppboði. Það gerðist nýverið og fengust nokkrir tugir milljóna króna fyrir þær. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins fór uppboðið á sumarbústaðalóðunum fram í 20 stiga frosti. Í kjölfarið gerði skilanefndin tilraun til fjárnáms hjá FI fjárfestingum. Í úrskurði héraðsdóms, sem Fréttablaðið hefur undir höndum, kemur fram að ekki hafi tekist að boða Hannes til fjárnámsgerðar "þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir". Fjárnáminu lauk án árangurs. Lögmaður Hannesar hélt því fram að aðfarargerðirnar væru ólögmætar. Því var héraðsdómur ósammála og úrskurðaði á föstudag að bú FI fjárfestinga yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Skilanefndin mun í kjölfarið höfða mál á hendur Hannesi og krefjast þess að hann greiði 400 milljónir króna vegna sjálfskuldarábyrgðarinnar. Heimildir herma að allur málatilbúnaður liggi fyrir. Einungis eigi eftir að birta Hannesi stefnuna. - þsj
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira