Frjáls verslun velur Eyjólf Árna mann ársins 29. desember 2011 13:31 Eyjólfur Árni Rafnsson.
Eyjólfur Árni Rafnsson, 54 ára framkvæmdastjóri verkfræðistofunnar Mannvits er maður ársins 2011 í íslensku atvinnulífi, að mati Frjálsrar verslunar. „Eyjólfur Árni hlýtur þennan heiður fyrir árangur við að virkja íslenskt hugvit, ásamt samstarfsfólki, í þágu atvinnulífsins; nýsköpun; fagmennsku í rekstri; athafnasemi og útsjónarsemi sem gert hefur Mannvit að framúrskarandi fyrirtæki og langstærsta ráðgjafafyrirtæki á sviði verkfræði og tækni á Íslandi," segir í rökstuðningi tímaritsins. „Hjá Mannviti starfa um 400 reyndir verkfræðingar og tæknimenntað fólk með fjölþætta reynslu á flestum sviðum verkfræðiþjónustu. Í mestu kreppu Íslandssögunnar hefur Mannvit færst í aukanna og aukið bæði veltu sína og hagnað þrátt fyrir minni framkvæmdir í vegagerð og byggingariðnaði og lítil verkefni á vegum ríkis og sveitarfélaga . Áætluð velta þessa árs er um 8,4 milljarðar og jókst um 28% frá í fyrra. Hagnaður verður um 900 milljónir króna gangi áætlanir eftir. Fyrirtækið er í 78. sæti á lista Frjálsrar verslunar yfir stærstu fyrirtæki landsins. Velta ársins 2008 var rúmir 6,6 milljarðar en fór niður í rúman 5,1 milljarð árið 2009; fyrsta árið eftir hrun. En Mannvit kom til baka á árinu 2010 og varð veltan þá tæpur 6,1 milljarður og áætluð velta þessa árs er 8,4 milljarðar. Starfsemi Mannvits er fyrst og fremst á Íslandi og koma mestar tekjur af þjónustu við álverin og orkufyrirtækin. Mannvit er með starfsemi í Bretlandi og Mið- og Austur-Evrópu. Unnið er að því að koma upp starfsemi á vegum Mannvits í Chile með áherslu á jarðvarmaverkefni. Að sögn Eyjólfs hafa 80% starfsmanna Mannvits lokið háskólanámi. Um 3% starfsmanna eru með doktorspróf og 38% hafa lokið mastersprófi. Mannvit var stofnað árið 2008 við sameingu Hönnunar, VGK og Rafhönnunar. Fyrirtækin standa á gömlum merg en VGK og Hönnun hafa veitt verkfræðiráðgjöf allt frá árinu 1963 og Rafhönnun frá árinu 1969. Eyjólfur Árni Rafnsson er með doktorspróf í byggingarverkfræði frá University of Missouri-Rolla í Bandaríkjunum. Maki hans er Egilína S. Guðgeirsdóttir. Þau eiga fjóra syni og fimm barnabörn."
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira