Samherji í viðræðum um kaup á Olís Þorbjörn Þórðarson skrifar 29. desember 2011 19:39
Samherji er í miðjum samningaviðræðum um að kaupa stóran hlut í Olís í samstarfi við aðra fjárfesta. Þetta staðfestir forstjóri Samherja. FAD 1830 er móðurfélag Olís, en félagið í jafnri eigu þeirra Gísla Baldurs Garðarssonar lögmanns og Einars Benediktssonar, forstjóra Olís. Félagið skipti nýlega um nafn og hefur ekki skilað ársreikningi frá árinu 2007. FAD 1830 ehf. fékk 625 milljónir króna í arð frá Olís vegna ársins 2007 þótt Olís hafi skilað tapi upp á sex milljarða árið sem arðurinn var greiddur út. Eigið fé Olís er 1,7 milljarðar króna en fyrirtækið skuldar alls sextán milljarða. Samherji hefur um árabil verið meðal stærstu viðskiptavina Olís. Að undanförnu hafa eigendur félagsins FAD 1830 ehf., sem er móðurfélag Olís, verið í viðræðum við aðkomu nýrra hluthafa að rekstri Olís vegna erfiðrar skuldastöðu FAD 1830 ehf. við Landsbankann. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, staðfestir að samningaviðræður standi yfir um kaup Samherja á hlut í Olís. „Það hafa verið viðræður við okkur um að eignast hlut í félaginu en það er gegn því að þónokkuð margir nýir hluthafir komi að (Olís). Það er ekki frágengið og verður ekki endanleg niðurstaða í því máli fyrr en á nýju ári," segir Þorsteinn Már. Ef Samherji á aðkomu að endurskipulagningu Olís þá verður það í samstarfi við stóran hóp hluthafa? „Allaveg þónokkur fyrirtæki, já." Samkvæmt upplýsingum fréttastofu verða núverandi eigendur áfram í hluthafahópi Olís ef þetta gengur eftir, en þó með minni hlut en áður. Hvers vegna hafið þið áhuga á Olís. Fyrir utan þá augljósu ástæðu að þið kaupið mikið af olíu? „Við höfum verið stórir viðskiptavinir Olís mjög lengi. Reyndar höfum við verið í viðskiptum við fyrirtækið frá því við hófum útgerð. Þannig að við berum góðan hug til félagsins." thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Sjá meira