Viðskipti innlent

Afli Færeyinga við Ísland 19 þúsund tonn í fyrra

Afli erlendra ríkja við Ísland var rúm 19 þúsund tonn árið 2010 miðað við tæp 11 þúsund tonn 2009. Færeyingar stunduðu einar þjóða veiðar hér við land á síðasta ári og mest var veitt af loðnu eða rúm 7 þúsund tonn.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að heimsaflinn hafi verið tæpar 90 milljónir tonna árið 2009 og dróst saman um 809 þúsund tonn frá árinu 2008. Kyrrahafið gaf mestan afla og stærsta einstaka fisktegundin var Perúansjósa.

Kínverjar veiddu mest allra þjóða árið 2009 en Íslendingar voru í 19. sæti heimslistans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×