Ekki hægt að flytja bílalánið nema með þriðjungshækkun á vöxtum Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 19. desember 2011 18:00
Bílalánafyrirtækið Ergo neitar hjónum, sem vilja flytja bílalánið sitt yfir á nýrri bíl, um veðflutning nema nýr samningur verði gerður með rösklega þriðjungshækkun á vöxtum. Bankinn kveðst mæta fólki á miðri leið og veita afslátt frá markaðsvöxtum við veðflutning. Hjónin eiga Land Cruiser jeppa árgerð 2004 með láni frá Ergo sem er innan Íslandsbanka. Eftir að gengislánin voru dæmd ólögmæt greiða þau nú 5,25% vexti af bílaláninu - óverðtryggða vexti Seðlabankans. Þau vilja yngja upp, og kaupa Hondu Accord árgerð 2008, sem er að þeirra sögn minna keyrður en á sama listaverði og jeppinn. Samkvæmt því ætti nýrri bíllinn að vera jafngott eða betra veð fyrir bankann. Ergo segir nei - nema vextirnir verði hækkaðir í 7,2% - um rúman þriðjung. Eða eins og fram kemur í tölvupósti frá fyrirtækinu að ekki sé heimilt að flytja endurreiknaða bílasamninga á milli bíla. Aðeins sé í boði nýr samningur með hærri vöxtum. Bíleigandinn kvaðst í samtali við fréttastofu ekki hafa fengið haldbæra skýringu á því hvers vegna Ergo hjá Íslandsbanka hafnar því að flytja veðið og er afar ósáttur. Fréttastofa hafði samband við framkvæmdastjóra Ergo sem var ekki reiðubúinn að tjá sig, en að sögn upplýsingafulltrúa Íslandsbanka var ákveðið að mæta fólki, sem vildi skipta um bíla, á miðri leið og veita 1,75 prósentustiga vaxtaafslátt af markaðsvöxtum sem eru tæp 9 prósent. Bankinn vildi hins vegar ekki útskýra hvers vegna Ergo hafnar því að flytja veðið yfir á yngri bíl.
Mest lesið Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Atvinnulíf „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Viðskipti innlent Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Okkar eigin Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Viðskipti innlent Fleiri fréttir Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Sjá meira