Jón Ásgeir, Tryggvi og Kristín sakfelld 9. desember 2011 14:12 Jón Ásgeir Jóhannesson sést hér ásamt lögmanni sínum, Gesti Jónssyni, í dómsal.
Jón Ásgeir Jóhannesson, Kristín Jóhannesdóttir og Tryggvi Jónsson hafa verið dæmd sek um brot á lögum, í tengslum við skattahluta Baugsmálsins, en skilorðsbundinni refsingu er frestað í eitt ár. Dómur þess efnis féll í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 14:00 í dag en þau voru ekki viðstödd dómsuppkvaðningu. Í málinu voru Jón Ásgeir, Tryggvi og Kristín ákærð fyrir skattalagabrot, persónulega og í rekstri fyrirtækja. Ákæran beindist einnig að fyrirtækinu Gaumi, fjölskyldufyrirtæki Jóns Ásgeirs og Kristínar systur hans.Ríkið greiði helming málsvarnarlauna „Ákærunni í málinu fylgja skjöl í þúsundatali en ákæruvaldið hefur einungis stuðst við lítið brot af þeim við sönnunarfærslu í málinu," segir í niðurstöðu dómsins. „Var augljóslega ekki hugað að því að fjarlægja óþörf skjöl úr rannsókninni þegar ákæra var ráðin," segir dómarinn ennfremur en það er að hans mati andstætt lögum um meðferð sakamála. „Þá er skjalaskráin, sem fylgir gögnunum óaðgengileg og nærri ónothæf sem efnisyfirlit." Dómurinn segir að þetta hafi valdið dómendum og verjendum umtalsverðri fyrirhöfn og töfum allt frá því fyrst var farið að fjalla um málið árið 2009. Dómurinn komst því að þeirri niðurstöðu að málsvarnarlaun verjenda þremenninganna skyldu greiðast að hálfu leyti af ríkissjóði og að hálfu af ákærðu. Málsvarnarlaunin eru tæpar átján milljónir króna.
Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Sýn sakar Rúv um að mata ráðuneytið á röngum tölum Viðskipti Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Viðskipti innlent Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Viðskipti innlent Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta Samstarf Fleiri fréttir Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Sjá meira