Viðskipti innlent

Íbúðaverð í borginni heldur áfram að hækka

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram að hækka. Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 329,5 stig í október síðastliðnum og hækkar um 1% frá fyrri mánuði.

Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,7%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 5,8% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 7,5%. Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs en er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×