Íslandsbanki skráði eiginfjárhlutfall sitt of hátt 22. nóvember 2011 08:57
Íslandsbanki skráði eiginfjárhlutfall sitt of hátt í árshlutauppgjöri sínu þann 30. júní á síðasta ári. Þetta er ein af niðurstöðum athugunar Fjármálaeftirlitsins á tilteknum upplýsingum í eiginfjárskýrslu Íslandsbanka hf. Á vefsíðu eftirlitsins segir að Fjármálaeftirlitið gerði athugun á tilteknum upplýsingum í eiginfjárskýrslu Íslandsbanka hf. miðað við 30. júní 2010 á grundvelli heimildar í lögum. Fjármálaeftirlitið aflaði upplýsinga og gagna í tengslum við athugunina með fundum í desember 2010. Auk þess fór stofnunin fram á frekari upplýsingar og gögn á tímabilinu nóvember 2010 til janúar 2011. Athugunin beindist fyrst og fremst að flokkun lána Íslandsbanka hf. með veði í viðskiptahúsnæði í áhættuvogir. Jafnframt beindist hún að þekkingu, skilningi og viðhorfi starfsmanna bankans, gæðum upplýsingakerfa og hvernig hann væri í stakk búinn til að afhenda upplýsingar. Fjármálaeftirlitið lauk athuguninni með skýrslu dagsettri 1. júní 2011 eftir að Íslandsbanka hf. hafði verið gefinn kostur á að koma á framfæri andmælum sínum. Fram kemur í skýrslu Fjármálaeftirlitsins að ákveðin atriði í framkvæmd Íslandsbanka hf. hafi verið aðfinnsluverð og eru helstu athugasemdir í skýrslunni eftirfarandi: Notkun Íslandsbanka hf. á 50% áhættuvog á lán tryggð að fullu með veði í viðskiptahúsnæði var ekki í fullu samræmi við reglur um eiginfjárkröfur og áhættugrunn fjármálafyrirtækja. Framkvæmd bankans leiddi meðal annars í ljós að eiginfjárhlutfall í árshlutauppgjöri bankans miðað við 30. júní 2010 var metið of hátt. Skráningu upplýsinga og úrvinnslu þeirra vegna lána sem athuguð voru reyndist að hluta til ábótavant. Fjármálaeftirlitið vill taka fram að framkvæmd Íslandsbanka hf. hafði óveruleg áhrif á eiginfjárhlutfall bankans og því ekki teljandi áhrif fyrir viðskiptamenn, kröfuhafa eða hluthafa bankans. Með vísan til laga fór Fjármálaeftirlitið fram á úrbætur í samræmi við athugasemdir sem gerðar voru í skýrslunni. Fjármálaeftirlitið beindi þeim tilmælum til Íslandsbanka hf. að yfirfara verkferla við útfyllingu eiginfjárskýrslna og endurskoða lána- og tryggingakerfi bankans. Fjármálaeftirlitið fór einnig fram á að stjórn Íslandsbanka hf. fæli innri endurskoðunardeild að yfirfara úrbætur bankans og skila stofnuninni skýrslu þess efnis. Fjármálaeftirlitið mun uppfæra gagnsæistilkynningu þessa á vefsíðu stofnunarinnar þegar skýrsla Íslandsbanka hf. um úrbætur liggur fyrir, að því er segir á vefsíðunni.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira