Viðskipti innlent

Vonir aukast um að finna megi olíu á Drekasvæðinu

Niðurstöður nýrra rannsókna á hafsbotninum suður af Jan Mayen og inn á Drekasvæðið gefa auknar vonir um að þar megi vinna olíu

Fjallað er um málið á vefsíðu norsku Olíumálastofnunarinnar.  Rannsóknirnar voru unnar í samvinnu við Orkustofnun og náðu inn á íslenska hlutann á Drekasvæðinu.

Þessar rannsóknir fóru fram síðasta sumar og á vefsíðunni segir að niðurstöður þeirra séu spennandi. Í ljós hafi komið að bergið á hafsbotninum á þessum slóðum sé allt að 260 milljón ára gamalt og í því sé að finna setlög sem auka trú Norðmanna á að þarna megi finna og vinna olíu.

Sissel Eriksen forstjóri rannsóknardeildar Olíumálastofnunarinnar segir að greiningin á gögnum úr þessum rannsóknum hafi komið á óvart enda áttu Norðmenn ekki von á svona jákvæðum niðurstöðum úr þeim. Sissel bendir á að bergið á hafsbotninum suður af Jan Mayen sé á sama aldri og á þeim hafsvæðum við Grænland þar sem helst er talið að olíu sé að finna.

Fram kemur að þessum rannsóknum verður haldið áfram næsta sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×