Viðskipti innlent

Jákvæð afkoma hjá Akureyrarbæ á næsta ári

Rekstrarafkoma Akureyrar á næsta ári verður jákvæð um 68 milljónir króna á næsta ári eftir fjármagnsliði og tekjuskatt.

Þetta kemur fram í fjárhagsáætlun bæjarins sem lögð hefur verið fram í bæjarstjórn. Heildartekjur Akureyrarbæjar munu nema tæpum 17 milljörðum króna og heildarrekstrargjöld rúmum 15 milljörðum kr. samkvæmt áætluninni.

Í tilkynningu segir að heildarlaunagreiðslur ásamt launatengdum gjöldum hjá samstæðunni eru áætlaðar  tæplega 9 milljarða kr. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins, í hlutfalli við rekstrartekjur þess, eru áætluð 53,0%. Annar rekstrarkostnaður er áætlaður 29,9% af rekstrartekjum.

Skatttekjur sveitarfélagsins ásamt jöfnunarsjóði eru áætlaðar 519 þúsund kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 930 þúsund kr. á hvern íbúa.

Áætlað er að eignir sveitarfélagsins í efnahagsreikningi 31.12. 2012 verði bókfærðar á rúm 37 milljarða kr.  Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum nemi samkvæmt efnahagsreikningi 23,4 milljörðum kr., þar af eru skammtímaskuldir 6,6 milljarðar kr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×