Greiddu 3 prósent af raunvirði World Class 24. nóvember 2011 12:02 Björn Leifsson, framkvæmdastjóri og eigandi World Class.
Dómkvaddur matsmaður sem var fenginn til að meta verðmæti World Class metur reksturinn á átta hundruð til eitt þúsund milljónir króna en Björn Leifsson og kona hans seldu sjálfum sér fyrirtækið á tuttugu og fimm milljónir. Þrotabú Þreks ehf. sem hélt utan um rekstur World Class höfðaði fyrr á þessu ári mál á hendur Laugum ehf., félagi í eigu Björns Leifssonar og Hafdísar Jónsdóttur konu hans, til að reyna að fá rift sölu á rekstri World Class, en áður en Þrek ehf. fór í þrot árið 2009 seldi félagið reksturinn til annars félags í eigu hjónanna, Lauga ehf. fyrir 25 milljónir króna. Sigurbjörn Þorbergsson, skiptastjóri þrotabús Þreks ehf., lítur svo á að salan á fyrirtækinu á jafn lágu verði hafi í raun verið hreinn gjafagerningur sem sé riftanlegur á grundvelli laga um gjaldþrotaskipti. Þrotabúið höfðaði mál til að fá þessu rift og voru tveir dómkvaddir matsmenn fengnir til að meta raunverulegt virði rekstrarins. DV greindi frá því að dómkvaddur matsmaður hefði komist að þeirri niðurstöðu að rekstur World Class væri 800-1000 milljóna króna virði, en matsmennirnir voru í raun tveir. Sigurbjörn vildi ekki staðfesta þessa fjárhæð við fréttastofuna, en eftir því sem fréttastofa kemst næst er fjárhæðin rétt. Því greiddu hjónin í raun bara 3 prósent af raunvirði World Class þegar þau keyptu reksturinn af eigin félagi áður en það fór í gjaldþrot. Sigurbjörn Þorbergsson sagði í samtali við fréttastofu í dag að Laugar ehf., stefndi í málinu, hefði lagt fram beiðni um eigið mat á verðmæti rekstrar World Class en hjónin vilja ekki una verðmati hinna dómkvöddu matsmanna. ALMC, áður Straumur Burðaráss, er stærsti kröfuhafi þrotabús Þreks ehf. Sigurbjörn sagði næstu tíðinda að vænta í næstu viku þegar afstaða verður tekin til matsbeiðnar Lauga ehf. Ef beiðnin verður tekin til greina mun það taka sex vikur að vinna nýtt mat á verðmæti eignanna. Fréttastofan reyndi að ná tali af Birni Leifssyni nú í morgun, án árangurs.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira