ÍR-ingar ekki í miklum vandræðum í Vodafone-höllinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. nóvember 2011 20:41 James Bartolotta. Mynd/Valli
ÍR-ingar þurftu ekki að hafa mikið fyrir því að vinna botnlið Vals í Vodafone-höllinni í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld. ÍR vann leikinn með 92-86 en Valsmenn, sem hafa tapað öllum tólf leikjum sínum á tímabilinu, lögðuðu stöðuna í lokin með því að vinna fjórða leikhlutann 32-13. Valsmenn réðu lítið við þríeykið James Bartolotta, Nemanja Sovic og Robert Jarvis í kvöld en þeir skoruðu allir yfir tuttugu stig. Bartolotta og Jarvis voru báðir með 24 stig og Sovic skoraði 21 stig þar af 16 þeirra í fyrri hálfleik. Hjalti Friðriksson skoraði mest íslensku strákanna eða 10 stig. Garrison Johnson skoraði 23 stig fyrir Val og þeir Darnell Hugee og Igor Tratnik voru báðir með 21 stig. Birgir Björn Pétursson skoraði mest íslensku leikmannanna eða 9 stig. ÍR-ingar tóku frumkvæðið frá fyrstu mínútu og voru komnir í 9-4 eftir tvær mínútur. ÍR náði mest fimmtán stiga forskot í fyrsta leikhlutanum en vann hann á endanum 30-17. ÍR-ingar héldu áfram öruggu forskoti í öðrum leikhlutanum og voru með 20 stiga forskot í hálfleik, 54-34. Nemanja Sovic var kominn með sextán stig eftir fyrri hálfleikinn en hann hitti úr 6 af 9 skotum í hálfleiknum. Valsmenn náðu ekki að minnka muninn í þriðja leikhlutanum sem ÍR-liðið vann 25-20 og var því komið með 25 stig forskot fyrir lokaleikhlutann, 79-54. Valsmenn löguðu stöðuna í fjórða leikhlutanum en sigur ÍR var aldrei í hættu.Valur-ÍR 86-92 (17-30, 17-24, 20-25, 32-13)Valur: Garrison Johnson 23/9 fráköst/5 stolnir, Igor Tratnik 21/7 fráköst, Darnell Hugee 21, Birgir Björn Pétursson 9, Austin Magnus Bracey 4, Benedikt Blöndal 3, Ragnar Gylfason 3/4 fráköst/5 stoðsendingar, Bjarni Geir Gunnarsson 2.ÍR: Robert Jarvis 24, James Bartolotta 24/9 fráköst, Nemanja Sovic 21/4 fráköst, Hjalti Friðriksson 10/8 fráköst, Níels Dungal 4, Ellert Arnarson 3, Bjarni Valgeirsson 2, Þorvaldur Hauksson 2, Eiríkur Önundarson 2.
Dominos-deild karla Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira