Viðskipti innlent

Um 160 milljarðar með litla ávöxtun

Magnús Halldórsson skrifar
Um hundrað og sextíu milljarðar króna, í eigu íslensku lífeyrissjóðanna, eru nú inn á innlánsreikningum með lítilli sem engri ávöxtun. Framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóðanna segir stöðuna áhyggjuefni.

Fjárfestingaumhverfi fyrir íslensku lífeyrissjóðanna er erfitt um þessar mundir. Þetta sést ekki síst á því að sjóðirnir geyma gríðarlegar fjárhæðir á hefðbundnum innlánsreikningum með lítilli sem engri ávöxtun.

Hrunið hefur haft mikil áhrif á stöðu mála hvað innlánseignir lífeyrissjóðanna varðar, en sjóðirnir eiga margfalt meira fé á innlánsreikningum nú heldur en fyrir hrun. Miðað við stöðu mála í september sl. áttu lífeyrissjóðir um 160 milljarða króna í innlánum. Staðan hefur lítið breyst á þeim þremur árum sem liðin eru frá hruni.

Gera má ráð fyrir að lífeyrissjóðirnir muni taka virkan þátt í endurreisn hlutabréfamarkaðarins á næstu mánuðum, en framundan eru nokkrar nýskráningar á fyrirtækjum inn á markað. Þar á meðal eru Hagar, Skýrr og Horn fjárfestingafélag, dótturfélag Landsbankans.

Eignastaða sjóðanna er þó sterk, samkvæmt upplýsingum um stöðu þeirra frá Seðlabanka Íslands. Eignir sjóðanna eru metnar á ríflega 2.000 milljarða króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×