Viðskipti innlent

Dráttarvextir hækka um 0,25 prósentur

Grunnur dráttarvaxta hækkaði um 0,25 prósentur við síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans Íslands í byrjun nóvember. Dráttarvextir hækka því að sama skapi um 0,25 prósentur frá og með 1. desember nk. og verða 11,75%.

Þetta kemur fram í mánaðarlegri tilkynningu bankans um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Vextir verðtryggðra útlána verða óbreyttir en vextir óverðtryggðra útlána lækka í 5,25% og vextir af skaðabótakröfum lækka í 3,50%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×