Viðskipti innlent

Útgjöld til fræðslumála eru 8,3% af landsframleiðslu

Í fyrra námu heildarútgjöld til fræðslumála 128,2 milljörðum króna eða 8,3% af landsframleiðslu. Þar af var hlutur hins opinbera 116,7 milljarðar króna en hlutur einkaaðila 11,5 milljarðar eða 9,0% af útgjöldunum.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar Þar segir að sem hlutfall af landsframleiðslu hafa heildarútgjöld til fræðslumála hækkað úr ríflega 7,4% af landsframleiðslu árið 1998 í rúmlega 8,3% á árinu 2010.

Af aðildarríkjum OECD voru heildarútgjöld til fræðslumála hæst á Íslandi árið 2008 eða 7,9% af landsframleiðslu. Meðaltalið í OECD var 5,5% en mikill munur er á hlutfallinu milli einstakra ríkja. Lægst var það í Slóvakíu eða 4%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×