Viðskipti innlent

S&P hækkar mat sitt á íslenska bankakerfinu

Matsfyrirtækið Standard & Poor´s (S&P) telur að íslenska bankakerfið sé að braggast. Hefur Standard & Poor´s því hækkað mat sinn á bankakerfinu um einn flokk eða úr hópi 8 og upp í hóp 7. Reuters greinir frá þessu.

Um er að ræða svokallaða BICRA mælingu en nafnið er skammstöfun yfir Banking Industry Country Risk Assessments sem mætti lauslega þýða sem matið á áhættuni af bankakerfi landsins. Matið er gefið á skalanum 1 til 10 þar sem hópur 1 er toppeinkunnin og hópur 10 er botninn.

Með Íslandi í hópi 8 voru lönd á borð við Nígeríu, Argentínu, Túnis og Kazakstan.

Með Íslandi í hópi 7 eru lönd á borð við Ungverjaland, Marokkó, Litháen og Indónesíu.

S&P hóf að gefa út BICRA mat sitt árið 2006. Það ár var Ísland sett í hóp 4 með löndum á borð við Tékkland, Grikkland, Ísrael, Saudi Arabíu og Suður Kóreu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×