Viðskipti innlent

Íslandsbanki setur Hlíðasmára 3 í söluferli

Miðengi, eignarhaldsfélagi í eigu Íslandsbanka, hefur sett Hlíðasmára 3 í Kópavogi í opið söluferli. Húsið er fimm hæðir og í því er verslunar- og skrifstofuhúsnæði sem er í útleigu. Húsið var byggt árið 2001.

Í tilkynningu segir að söluferlið sé opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla skilyrði til þess að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum  um verðbréfaviðskipti, einstaklingum sem hafa verulegan fjárhagslegan styrk og viðeigandi þekkingu, auk fyrirtækja sem höfðu eiginfjárstöðu sem var hærri en sem nemur 150 milljónir kr. í árslok 2010.

Móttaka trúnaðaryfirlýsinga og afhending viðeigandi gagna hefst mánudaginn 14. nóvember 2011. Síðasti frestur til að skila inn tilboði vegna þátttöku í söluferlinu er föstudaginn 25. nóvember 2011 kl. 16:00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×