Viðskipti innlent

Segir ESB ályktun engu breyta

Jón Hákon Halldórsson skrifar
„Ég sé ekki að þessi samþykkt breyti neinu þar sem Samtök atvinnulífsins binda ekki einstök aðildarsamtök eða fyrirtæki varðandi afstöðuna til ESB aðildar eða umsóknarferlisins yfirleitt,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, um ályktun stjórnar Samtaka atvinnulífsins frá því í dag.

Í ályktuninni lýsir SA því að samtökin séu andvíg því að aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði hætt. Stjórnin klofnaði í afstöðu til ályktunarinnar, en LÍÚ er sem kunnugt er andvígt inngöngu í Evrópusambandið. „Það er ekkert nýtt að stjórnarmenn í samtökunum hafi mismunandi skoðanir til málsins eins og þessi atkvæðagreiðsla sýnir,“ segir Friðrik.

Hann segir að atkvæðagreiðslan um ályktunina breyti því ekki að Samtök atvinnulífsins þurfi að gæta hagsmuna allra félagsmanna og þar sé enginn rétthærri en annar.  „Það er sérstaklega mikilvægt þegar fjallað er um grundvallarmál eins og hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu af þeir sem koma fram fyrir hönd samtakanna hafi þetta í heiðri,“ segir Friðrik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×