Viðskipti innlent

Skuldir fjármálakerfisins nema sexfaldri landsframleiðslu Íslands

Eignir fjármálakerfisins námu um 10.906 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi ársins í ár. Þar af voru útlán 4.213 milljarðar króna eða tæp 39%. Skuldirnar nema hinsvegar sexfaldri landsframleiðslu landsins.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar kemur fram að skuldir fjármálakerfisins námu um 15.365 milljörðum króna en þar af voru innlán 4.429 milljarðar króna eða tæp 29%.

Stór hluti af bæði fjármálalegum eignum og skuldum fjármálakerfisins er hjá fjármálafyrirtækjum í slitameðferð eða nauðasamn­ingum. Eignir þessara fyrirtækja námu tæplega tvöfaldri landsframleiðslu Íslands.

Skuldir þessara fyrirtækja eru umtalsverðar og má nefna að heildarskuldir þeirra námu rúmlega sexfaldri landsframleiðslu á öðrum ársfjórðungi ársins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×