Sveigjanlegt gengi virðist ekki draga úr óstöðugleika 13. nóvember 2011 15:09
Prófessor í hagfræði við Lundúnarháskóla telur að lítil rík hagkerfi eins og Ísland geti notið góðs af fastgengisstefnu af einhverju tagi, þar sem sveigjanlegt gengi virðist ekki draga úr óstöðugleika. Francis Breedon er prófessor í hagfræði við Lundúnarháskóla, en hann hélt erindi um gengisstefnu auðugra smáríkja eins og Íslands í Seðlabankanum í vikunni sem leið. Þar fjallaði hann um rannsókn sem hann vann ásamt Þórarni G. Péturssyni, aðalhagfræðingi Seðlabankans, og Andrew Rose, prófessor við Berkeley háskóla í Bandaríkjunum. Í rannsókninni skoða hagfræðingarnir þá fullyrðingu sem oft er haldið á lofti, nú síðast af Nóbelsverðlaunahafanum Paul Krugman sem hélt erindi hér á landi, að sveigjanlegt gengi hjálpi hagkerfum að aðlagast áföllum. Fátt í gögnum rannsóknarinnar bendir hins vegar til að sú sé raunin. Í erindi Breedons kom fram að lönd með fljótandi gjaldmiðla njóti ekki meiri stöðugleika í mikilvægum hagstærðum en hin, en hins vegar taki þau út minni stöðugleika í genginu. Þess vegna sé skiljanlegt að mörg auðugu smáríki kjósi sér einhverskonar fastgengi, þar sem það dragi úr gengissveiflum án þess að hafa neinar neikvæðar hliðarafleiðingar. Fastgengi getur verið misstrangt; land getur ákveðið að festa gengið einhliða, það getur sett á fót myntráð þar sem erlendur gjaldmiðill stendur að baki peningamagni í umferð, eða það getur tekið upp annan gjaldmiðil. Að mati Breedons er strangara fastgengi betra, þar sem það er varanlegra. En þó þannig sé hægt að draga úr gengissveiflum dugar fastgengi ekki til að eyða óstöðugleikanum sem lítil ríki glíma við. Breedon mælir því með frekari stofnunum til að dreifa áhættu smáríkja, til að draga úr tilhneigingu þeirra til að geyma egg sín í sömu körfu.
Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Verðbólgan verði þrálát út árið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Sjá meira