Viðskipti innlent

Ólafur Ragnar: Ísland fylgist með vanda ESB úr fjarlægð

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er nú staddur á ráðstefnu í Genúa á Ítalíu, um skuldavandann í Evrópu og víðar.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er nú staddur á ráðstefnu í Genúa á Ítalíu, um skuldavandann í Evrópu og víðar.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði í viðtali við Al-Jazeera sjónvarpsstöðina að Íslendingar myndu fylgjast með því úr fjarlægð hvernig Evrópusambandinu myndi ganga að eiga við skuldavandann í Evrópu áður en tekin yrði ákvörðun um hvort við ættum heima í sambandinu.

Ólafur Ragnar sagði enn fremur í viðtalinu að lækkun á gengi krónunnar hefði hjálpað landinu að komast út úr erfiðleikunum eftir hrunið 2008. Hann sagði afnframt að hátt gengi krónunnar hefði verið hluti af vanda Íslands fyrir hrun.

Ólafur Ragnar ítrekaði enn fremur að Íslendingar hefðu tekið ákveðið sjálfir að greiða ekki skuldir einarekinna banka.

Ólafur Ragnar flutti í dag setningarræðu á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Genúa á Ítalíu um skuldavanda þjóða.



Viðtalið við Ólaf Ragnar, sem tekið var í gær, má sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×