Viðskipti innlent

Spáir óbreyttri verðbólgu í nóvember

Greining Arion banka spáir því að vísitala neysluverðs hækki aðeins um 0,1% í nóvember sem þýðir að ársverðbólgan verður óbreytt í 5,3%.

Fjallað er um spána í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að fátt drífi verðbólguna áfram í nóvember. Veiking krónunnar á fyrrihluta ársins sé að mestu gengin til baka og ekki útlit fyrir neinar árstíðabundnar verðhækkanir.

Einnig lítur út fyrir að eldsneytisverð haldist óbreytt frá fyrra mánuði og að flugfargjöld muni lækka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×