Viðskipti innlent

Engar greiðslur frá Íslandsbanka til kröfuhafa Glitnis

„Frá stofnun Íslandsbanka hafa engar greiðslur farið frá Íslandsbanka til kröfuhafa Glitnis.  Engar arðgreiðslur hafa verið greiddar til eigenda bankans, þ.e. Glitnis og íslenska ríkisins, og stjórnendur bankans kannast ekki við að hafi þrýst hafi verið á um slíkt.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka sem send er vegna umfjöllunar um málefni bankans og kröfuhafa Glitnis.

Í tilkynningunni segir: „Í úrskurði Fjármálaeftirlitsins frá 7. janúar 2010 var kveðið á um að eignarhald Íslandsbanka skyldi vera í höndum sérstaks dótturfélags Glitnis, ISB Holding, og skyldi stjórn þess vera að meirihluta skipuð stjórnarmönnum  sem eru óháðir Glitni, kröfuhöfum og Íslandsbanka sjálfum.

Félagið á 95% hlutafjár í Íslandsbanka og útnefnir 6 af 7 stjórnarmönnum bankans. Ríkið á 5% af hlutafé bankans og hefur einn fulltrúa í stjórn.

Í sjö manna stjórn Íslandsbanka sitja m.a. fjórir erlendir stjórnarmenn sem eru sérfræðingar í fjármálastarfsemi, endurskoðun og stjórnarháttum fyrirtækja. Þessir stjórnarmenn voru valdir inn í stjórn á faglegum forsendum og eru óháðir eigendum bankans.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×