Viðskipti innlent

Áætlun lögð fram um útgreiðslu úr búi Landsbankans

Landsbankinn.
Landsbankinn.
Slitastjórn gamla Landsbankans lagði fram áætlanir um fyrstu hlutagreiðslur úr þrotabúi bankans á fundi sínum með skilanefnd og tæplega hundrað kröfuhöfum í morgun. Fundurinn stendur enn yfir en blaðamannafundur hefur verið boðaður nú klukkan 13:00.

Fram kom í kjölfar dóma Hæstaréttar í lok síðasta mánaðar þar sem forgangsréttur krafna varð skýr að gert væri ráð fyrir að fyrstu greiðslur færu fram nokkrum vikum síðar. Miklu máli skiptir með hvaða hætti verður greitt úr búinu, einkum við hvaða gengi verður miðað við. Einnig skiptir máli í þessum samhengi í hvaða mynt greitt verður út úr búinu. Kröfur vegna innstæðna á Icesave-vega langsamlega þyngst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×