Viðskipti innlent

Forstjóri ATP: Íslendingar tapa tugum milljarða á FIH bankanum

Lars Rohde forstjóri ATP lífeyrissjóðsins í Danmörku segir að Íslendingar muni tapa tugum milljarða króna á sölunni á FIH bankanum í byrjun síðasta árs.

Þetta kemur fram í viðtali við Rohde í viðskiptablaðinu Börsen. Lífeyrissjóðurinn er stærsti eigandi bankans.

Þegar FIH bankinn var seldur fyrir 5 milljarða danskra króna á síðasta ári fékk Seðlabanki Íslands 1,9 milljarða danskra króna staðgreiddar en afgangurinn af kaupverðinu, 3,1 milljarður danskra króna eða hátt í 70 milljarðar króna er bundinn við gengi FIH bankans fram til ársins 2015.

FIH bankinn er í mjög þröngri stöðu í augnablikinu og lítur út fyrir mikið tap á rekstri hans á næstu árum. Þetta tap geta núverandi eigendur bankans dregið frá kaupverðinu, á kostnað íslenskra seljenda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×