Beiðni Iceland Express um lögbann var hafnað 1. nóvember 2011 15:26 Matthías Imsland, fyrrverandi forstjóri Iceland Express.
Sýslumaðurinn í Reykjavík hafnaði í dag beiðni Iceland Express um lögbann vegna Matthíasar Imsland fyrrverandi forstjóra félagsins. Félagið vildi lögbann á að Matthías starfi með nýju félagi í flugrekstri í samkeppni við Iceland Express næstu 30 mánuði en hann er á meðal þeirra sem standa að flugfélaginu WOW. „Matthías er enn á launum á uppsagnarfresti frá Iceland Express, var síðast greitt laun upp á aðra milljón króna um þessi mánaðamót, er með síma, fartölvu og heimatölvu frá fyrirtækinu og fær að auki greiddan bifreiðastyrk. Uppsagnarfrestur hans rennur ekki út fyrr en 1. apríl 2012,“ segir í yfirlýsingu frá Iceland Express. Félagið ætlar að kæra úrskurðinn til Héraðsdóms Reykjavíkur og fara fram á að honum verði hrundið. „Matthías Imsland hefur í sínum fórum yfirgripsmiklar upplýsingar um starfsemi Iceland Express sem og er eðlilegt að stór hluti þeirra verði að teljast viðskiptaleyndarmál,“ segir ennfremur. „Það er skoðun stjórnar Iceland Express að með því að vinna að stofnun annars félags og vera í sams konar rekstri á uppsagnartímanum og vera hlutiafi í því, sé Matthías að brjóta gegn ráðningarsamingi sínum. Reyndar er stjórn félagsns þeirrar skoðunar að samkvæmt ráðningarsamningi sé Matthíasi ekki heimilt að koma að sams konar rekstri í 24 mánuði að uppsagnarfresti liðnum.“ Að lokum er fullyrt að aðrir aðilar sem koma að slíkum rekstri með Matthíasi og nýta sér upplýsingar um rekstur Iceland Express gætu skapað sér skaðabótaskyldu.
Mest lesið „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Sjá meira