Óstofnað félag með hæsta boð í Þverá/Kjarrá Af Vötn og Veiði skrifar 2. nóvember 2011 09:18 Laxi landað í Grænhyl í Kjarrá Mynd: gg
Samkvæmt áreiðanlegum upplýsingum, þá eru þrír einstaklingar, Halldór Hafsteinsson, Davíð Másson og Ingólfur Ásgeirsson með hæsta tilboð í Þverá/Kjarrá „fyrir hönd óstofnaðs félags“ eins og það er orðað. Upphæðin er 111.700.000 krónur, en áin leigist frá og með 2013 til fimm ára, eða til og með 2017. Alls voru tilboðin sjö talsins og voru ofangreindir þremenningar efstir, en stutt var í næsta tilboð sem var frá Lax-á, 111.200.000 krónur. Hreggnasi var með tvö tilboð „fyrir hönd óstofnaðs félags“ eins og það er orðað, hærra tilboðið 108 milljónir og það lægra 92,6 milljónir. Vesturárdalur, leigutaki Vesturdalsár og Hafralónsár, bauð 100.525.000 krónur og síðan voru SVFR og Tail ehf á líku róli, Stangó með 88.111.111 krónur og Tail ehf 88 milljónir sléttar. Meira á https://www.votnogveidi.is/frettir/almennt/nr/4071 Birt með góðfúslegu leyfi Vötn og Veiði
Stangveiði Mest lesið Nýtt frítt veftímarit um sportveiði Veiði Yfir 100 sjóbirtingar komnir úr Vatnamótunum Veiði Risarnir í Eystri Rangá Veiði Áhyggjur af vatnsleysi í ánum í sumar Veiði Loksins spáð rigningu sem gæti lífgað uppá veiðina Veiði Laxar farnir að sjást víða Veiði 17 punda hrygna í Miðdalsá Veiði Grein um Stóru Laxá í Þýsku blaði Veiði Veiðitölur LV: Aldrei minni veiði síðan talningar hófust Veiði Laxinn er mættur í Elliðaárnar Veiði