Viðskipti innlent

Vill ljúka fjármögnunarsamningi um Vaðlaheiðagöng

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Steingrímur Sigfússon segir framkvæmdina gríðarlega góða.
Steingrímur Sigfússon segir framkvæmdina gríðarlega góða.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segist telja að ekkert sé því til fyrirstöðu að ljúka fjármögnunarsamningi við fyrirtækið Vaðlaheiðagöng hf um fjármögnun fyrir gerð ganganna. Samkvæmt samningnum mun fyrirtækið hafa umsjón með gerð ganganna með láni frá ríkissjóði. Verktakafyrirtækin ÍAV og Marti munu sjá um verklegan þátt framkvæmdanna.

Steingrímur J. Sigfússon sagði á fundi umhverfis- og samgöngunefndar í morgun að forsendur í fjárhagsáætlunum vegna gerðar ganganna væru eins traustar og þær gætu orðið. Það ætti því að vera hægt að ljúka fjármögnunarsamningi á nokkrum vikum. Sótt yrði um heimild til þess í fjáraukalögum.

Steingrímur sagði að framkvæmdirnar væru gríðarlega góðar. Hann gæti vottað um það, sem heimamaður, að Víkurskarð væri oft mjög erfitt yfirferðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×