Ógilding yfirtöku Stjörnugríss á svínabúum staðfest 8. nóvember 2011 15:39 Arion banki.
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins um að ógilda yfirtöku fyrirtækisins Stjörnugríss á svínabúum. Þetta kemur fram á vefsíðu Samkeppniseftirlitsins. Í júlí sl. ógilti Samkeppniseftirlitið samruna sem fólst í yfirtöku Stjörnugríss á tilteknum eignum félaganna, sem fóru með rekstur svínabúanna Brautarholts og Grísagarðs. Svínabúin höfðu komist í eigu Arion banka eftir að fyrirtækin sem ráku þau urðu gjaldþrota. Var horft til þess að með kaupum Stjörnugríss á svínabúunum hefði fyrirtækið komist í markaðsráðandi stöðu á markaði fyrir svínarækt og styrkt markaðsráðandi stöðu sína á markaðnum fyrir slátrun á svínum. Þetta, ásamt styrkri stöðu samstæðunnar á eggjamarkaði, styrki einnig stöðu hennar gagnvart fóðurseljendum, kjötvinnslum og dagvöruverslunum, sbr. úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála nr. 1/2011. Taldi Samkeppniseftirlitið ekki sannað að skilyrði reglna um félag á fallanda fæti væru uppfyllt. Í þeim reglum felst að unnt er að heimila samruna sökum alvarlegra fjárhagslegra erfiðleika fyrirtækja. Stjörnugrís og Arion banki kærðu ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og gerðu margvíslegar athugasemdir við málsmeðferð og niðurstöðu eftirlitsins. Með úrskurði áfrýjunarnefndar, sem birtur er í dag, er ákvörðun Samkeppniseftirlitsins staðfest. Telur nefndin að málsmeðferð þess hafi verið eðlileg. Einnig er það mat nefndarinnar að Stjörnugrís og Arion banki hafi ekki sýnt fram á að reglan um félag á fallanda fæti ætti við.
Mest lesið „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Viðskipti erlent Íslendingur missir leyfið fyrir KFC í Danmörku eftir meiriháttar hneyksli Viðskipti erlent Flügger rannsakað fyrir brot á viðskiptaþvingunum Viðskipti erlent Lánardrottnar slá af milljarð af vöxtum á ári Viðskipti innlent Áætla að húsnæði á Íslandi sé verulega vantryggt fyrir bruna Neytendur Baldvin tekinn við sem forstjóri Samherja Viðskipti innlent Opinn fundur HMS um endurmat brunabótamats Neytendur Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Viðskipti innlent Fordómar: „Mætti halda að á Íslandi væri ekkert sölustarf til“ Atvinnulíf BYKO PLÚS er nýr fríðindaklúbbur fyrir einstaklinga Samstarf Fleiri fréttir Baldvin tekinn við sem forstjóri Samherja Lánardrottnar slá af milljarð af vöxtum á ári Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Atvinnuleysi minnkar lítillega Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Sjá meira