Leigumarkaðurinn óðum að dragast saman 9. nóvember 2011 09:24
Leigumarkaðurinn dregst nú óðum saman en samfelld fækkun hefur orðið á þinglýstum leigusamningum milli ára það sem af er árinu. Fyrstu tíu mánuði ársins hefur alls 5.551 leigusamningum verið þinglýst á höfuðborgarsvæðinu samanborið við 5.944 á sama tíma í fyrra, sem jafngildir 6,6% fækkun á milli ára. Þetta mátti lesa út úr tölum sem Þjóðskrá Íslands hefur birt. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að á sama tíma og leigumarkaðurinn dregst nú saman, eftir að hafa ríflega tvöfaldast í kjölfar hrunsins, heldur kaupsamningum íbúðarhúsnæðis áfram að fjölga. Frá síðustu áramótum og fram til 3. nóvember hefur samtals verið þinglýst 3.818 kaupsamningum um íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu, sem er um það bil þriðjungi meira en á sama tímabili fyrra árs þegar 2.919 kaupsamningum hafði verið þinglýst. „Þetta bendir til þess að landsmenn eru nú að færa sig úr leiguhúsnæði yfir í eignarhúsnæði. Bendir þetta einnig til þess að sú mikla veltuaukning sem orðið hefur í kaupum og sölu íbúða sé ekki fyrst og fremst knúin áfram að fjárfestum sem eru að nýta þær íbúðir til útleigu. Leigumarkaðurinn er samt enn stór í samanburði við það sem hann var fyrir bankahrunið,“ segir í Morgunkorninu. „Á árunum 2006 og 2007 var til að mynda um það bil 3.200 leigusamningum með íbúðarhúsnæði þinglýst hvort ár fyrir sig, en nú þegar fyrstu tíu mánuðir þessa árs eru liðnir hefur samtals verið þinglýst 5.551 leigusamningi með íbúðarhúsnæði.“
Mest lesið „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Sjá meira