Viðskipti innlent

Aflaverðmætið eykst um 3,8 milljarða milli ára

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 83,6 milljörðum króna fyrstu sjö mánuði ársins samanborið við 79,8 milljarða á sama tímabili í fyrra. Aflaverðmæti hefur því aukist um 3,8 milljarða króna eða 4,8% á milli ára.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflaverðmæti botnfisks fyrstu sjö mánuði ársins nam 54,7 milljörðum króna og dróst saman um 3,4% sé miðað við sama tímabili árið 2010.. Verðmæti þorskafla var um 26,5 milljarðar og dróst saman um 2% frá fyrra ári.

Aflaverðmæti ýsu nam 6,7 milljörðum og dróst saman um 29%, en verðmæti karfaaflans nam 7,5 milljörðum, sem er 10% aukning miðað við sama tímabil árið  2010. Verðmæti ufsaaflans jókst um 13,1% milli ára í tæpa 4,9 milljarða.

Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 6,4 milljörðum króna fyrstu sjö mánuði ársins  sem er 0,8% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 30,9% milli ára og nam 19,7 milljörðum.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 37,9 milljörðum króna og jókst um 14,6% frá árinu 2010. Aflaverðmæti sjófrystingar voru 29,3 milljarðar sem er 6,4% aukning frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands nam um 11,9 milljörðum sem er 2,6% samdráttur miðað við sama tímabil árið 2010.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×