Álverð ekki verið lægra frá því í september í fyrra 21. október 2011 13:26
Verð á áli hefur lækkað talsvert síðustu daga og er nú lægra en verið hefur frá septemberlokum í fyrra. Í Morgunkorni Íslandsbanka kemur fram að við lokun markaða í gær hafi framvirkt verð lækkað um fjórðung frá maíbyrjun. Í Morgunkorninu segir að meðal ástæðna sem tína megi til fyrir lækkuninni megi nefna nýlega birtar tölur frá Alþjóðaálstofnuninni sem sýna að framleiðsla áls hefur nú náð sama magni og fyrir hrun. Vitnað er til stjórnenda Alcoa sem bentu á það við kynningu á síðasta uppgjöri sínu að líklega væri framboð áls á þessu ári, ef Kína væri undanskilið, um það bil einni milljón tonna tonna umfram eftirspurn þetta árið. „Hins vegar er talið að Kínverjar þurfi á umtalsvert meira áli að halda en framleitt er í landinu, þótt innflutningstölur þar á bæ hafi ekki endurspeglað það nema að hluta upp á síðkastið.“ „Fram til þessa hefur umframálinu verið haldið utan markaðar af fjárfestum, og eru þannig u.þ.b. 4,6 m.tonn geymd í vöruhúsum víðsvegar um heiminn þessa dagana. Þessa geymslu álsins þarf hins vegar að fjármagna, og hefur það orðið þyngri róður eftir því sem skuldakreppan í Evrópu hefur sett mark sitt á fjármálamarkaði. Gæti það aukið töluvert við framboð áls á markaði á næstunni. Auk þessa hafa horfur um eftirspurn áls verið að versna undanfarið, líkt og raunin er með margar aðrar hrávörur, eftir því sem efnahagshorfur á heimsvísu hafa versnað. Hefur það haft neikvæð áhrif á álverð frá áliðnu síðasta sumri rétt eins og á hrávöruverð almennt,“ segir ennfremur. Hvað varðar áhrif hérlendis segja Íslandsbankamenn að þróun álverðs skipti íslenska hagkerfið verulegu máli, enda eru framleidd hér u.þ.b. 830 þús. tonn á ári, sem svarar til nálega 2% af heimsframleiðslu áls. „Á fyrstu átta mánuðum ársins nam útflutningsverðmæti áls tæplega 155 mö.kr., og jókst verðmæti útflutningsins um tæp 6% á milli ára þrátt fyrir ríflega 4% samdrátt í útfluttu magni og 2% sterkari krónu að jafnaði þetta árið en í fyrra. Verðmæti álútflutningsins er nánast hið sama og útflutningsverðmæti sjávarafurða þessa dagana, og er vægi hvorrar greinar fyrir sig u.þ.b. 25% af heildarútflutningstekjum Íslands. Eftir lækkunina undanfarið er álverð nú nálægt meðalverði áranna 2001-2010 á heimsmarkaði og er því vart hægt að fullyrða að verðið sé lágt í sögulegum skilningi í dollurum talið þrátt fyrir óhagfelldar aðstæður á markaði þessa dagana. Hins vegar er á það að líta að verðlag hefur almennt hækkað á þessum tíma. Til að mynda hefur neysluverð í Bandaríkjunum hækkað um u.þ.b. 27% frá síðustu aldamótum, og í ljósi þess er álverð ekki ýkja hátt.“
Mest lesið Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira