Krónan hefur hjálpað Íslendingum Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. október 2011 03:15 Paul Krugman er að undirbúa sig undir fyrirlestur á Íslandi. mynd/ afp.
Íslandi hefur vegnað betur en mörgum öðrum ríkjum í efnahagskreppunni, segir Paul Krugman, Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði. Hann segir að ástæðurnar séu fyrst og fremst tvær; að ríkissjóður tók ekki á sig skuldir bankanna og að Íslendingar eru með sjálfstæðan gjaldmiðil. Í bloggfærslu sem Krugman skrifaði á vefsvæði New York Times á föstudaginn tekur hann atvinnuleysi sem dæmi. Hann bendir á að það hafi ekki hækkað eins mikið á Íslandi og í Eistlandi, Lettlandi og Írlandi. Hann bendir á að skyndileg stöðnun hafi orðið í ríkjunum sem verst urðu úti í kreppunni. Til að fást við hana þurfi að auka útflutning og/eða minnka innflutning verulega. Þetta verði einungis gert með því að draga úr framleiðslukostnaði í hlutfalli við önnur ríki eða að gjaldmiðillinn lækki. Krugman bendir á að gengi krónunnar hafi snarlækkað. Með þessu hafi atvinnuleysið ekki aukist eins og í hinum ríkjunum. Krugman viðurkennir að hægt væri að nota aðra kvarða en atvinnuleysið og Ísland kæmi þá kannski verr út í samanburði. Hins vegar sé staðreyndin sú að þótt Íslendingar hafi þjáðst hafi þjóðinni ekki vegnað eins illa og mörgum öðrum ríkjum. Krugman vekur máls á því í pistil sínum að hann sé um þessar mundir að undirbúa sig undir ráðstefnu á Íslandi á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hún hefst á fimmtudaginn.
Mest lesið Sýnishornið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim Neytendur Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Viðskipti innlent Vilja selja Landsbankann Viðskipti innlent Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Viðskipti innlent Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Viðskipti innlent Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Viðskipti innlent Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ „Óhóflegt gjald“ fyrir símanotkun í Bretlandi heyri fljótt sögunni til Elín Tinna nýr framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi Heiðrún Lind kaupir í Sýn Ráðin forstöðukona markaðsmála hjá Olís Eldri stjórnendur sætti sig oftar við slæma hegðun og frammistöðu Farþegum til Íslands fjölgaði um 21 prósent Ekkert tillit tekið til aðstæðna og ljóst að vöruúrval minnki Brutu lög við söluna á Íslandsbanka og greiða yfir 60 milljónir í sektir Pakkarnir séu langt frá því að vera sambærilegir Síminn má dreifa efni Sýnar Húrra opnar þriðju verslunina á höfuðborgarsvæðinu Segir félaginu skylt að skipta sér af „sorgarvegferð“ Play Sjá meira