Viðskipti innlent

Dráttarvextir Seðlabankans óbreyttir

Dráttarvextir Seðlabankans verða óbreyttir í 11,5% út næsta mánuð. Þetta kemur fram í mánaðarlegri tilkynningu bankans um vaxtabreytingar.

Vextir óverðtryggðra lána hækka úr 5,25% og í 5,4% og vextir af skaðabótakröfum hækka úr 3,5% og í 3,6%.

Hinsvegar lækka vextir verðtryggðra lána töluvert eða úr 4,3% og niður í 3,9%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×