Lögbannskrafan gegn Matthíasi á sér enga stoð í lögum 26. október 2011 08:01 „
Af gefnu tilefni vil ég óska eftir að eftirfarandi komi fram. Lögbannskrafa Pálma Haraldssonar á hendur skjólstæðingi mínum, Matthíasi Imsland, á sér enga stoð í lögum né í skriflegum samningum." Þetta kemur fram í yfirlýsing frá Jóhannesi Árnasyni hdl. lögmanns Matthíasar Imsland vegna lögbannskröfu Iceland Express gegn því að Matthías Imsland starfi fyrir nýtt flugfélag sem Skúli Mogensen er að koma á laggirnar. Í yfirlýsingunni segir: „Ráðningarsamningur Matthíasar Imsland, og ákvæði um takmarkanir á atvinnufrelsi hans, féllu úr gildi um leið og Pálmi kaus að segja honum upp. Allir geta velt því fyrir sér hversu trúverðugt það er að aðili sem gerir út á mikilvægi samkeppni í auglýsingum, beiti á sama tíma þvingunarúrræðum til að bregða fæti fyrir samkeppni í flugrekstri. Öllum má jafnframt vera ljóst hvert sé raunverulegt markmið þessarar dæmalausu kröfugerðar – það er að sverta skjólstæðing minn og gera tilraun til að kasta rýrð á störf hans á nýjum vettvangi. Nýlega hætti eftirmaður skjólstæðings míns hjá Iceland Express störfum eftir einungis 12 daga í starfi og mátti hann í kjölfarið þola atlögu í fjölmiðlum þar sem dylgjað var um störf hans. Nú er það skjólstæðingur minn sem er skotmarkið. Átelja verður vinnubrögð gerðarbeiðandans í málinu, en þau eru fyllilega óásættanleg og ótrúlegt er að slíkar rangar ásakanir séu hafðar uppi í þessum tilgangi. Þess má að lokum geta að skoðað verður gaumgæfilega hvort ástæða sé til að höfða mál vegna rógs og tilhæfulausra ásakana sem fram koma í lögbannskröfunni. En fyrst verður farið fram á það að Sýslumaðurinn í Reykjavík hafni þessari fráleitu kröfugerð Pálma Haraldssonar og mun ég mæta fyrir hönd skjólstæðings míns og leggja fram gögn því til stuðnings."
Tengdar fréttir IE krefst lögbanns á umsvif forstjórans sem var rekinn Krafist er lögbanns á að Matthías Imsland, fyrrverandi forstjóri Iceland Express, notfæri sér trúnaðarupplýsingar frá félaginu til að vinna að stofnun annars fyrirtækis í flugrekstri. 26. október 2011 06:00 Mest lesið Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Viðskipti innlent Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Viðskipti innlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Sjá meira
IE krefst lögbanns á umsvif forstjórans sem var rekinn Krafist er lögbanns á að Matthías Imsland, fyrrverandi forstjóri Iceland Express, notfæri sér trúnaðarupplýsingar frá félaginu til að vinna að stofnun annars fyrirtækis í flugrekstri. 26. október 2011 06:00