Erlendar eignir bankanna lækkuðu um 21,6 milljarða 26. október 2011 09:11
Erlendar eignir íslensku bankanna lækkuðu um 21,6 milljarða króna í september síðast liðnum. Gætir þar ugglaust óróans sem var á erlendum fjármálamörkuðum nær allan þann mánuð. Í hagtölum Seðlabankans segir að heildareignir innlánsstofnana námu 2.846 milljörðum króna í lok september og eignirnar lækkuðu sem nemur 7 milljörðum kr. frá ágúst. Innlendar eignir námu 2.540 milljörðum kr. og hækkuðu um 14,5 milljarða kr. Erlendar eignir námu 305,9 milljörðum kr. og lækkuðu um 21,6 milljarða kr. frá fyrri mánuði. Skuldir innlánsstofnana voru 2.358,8 milljarðar kr. í lok september. Þar af voru innlendar skuldir 2.193 milljarðar kr. og höfðu lækkað um 7,2 milljarða kr. frá fyrri mánuði. Erlendar skuldir lækkuðu hins vegar um 2,7 milljarða kr. frá ágúst og námu því 165,5 milljörðum kr. Eigið fé innlánsstofnana nam 487,6 milljarðar kr. í lok september. Útlán Arion banka hf., Íslandsbanka hf. og NBI hf. eru í þessum tölum metin á kaupvirði þ.e. því virði sem þessir aðilar keyptu útlánasafnið á af fyrirrennurum sínum. Lánasöfnin eru endurmetin reglulega sem getur leitt til hækkunar eða lækkunar á virði einstakra lána. Breytingar á útlánasafni þessara aðila geta því stafað af endurmati á virði lána eða af raunverulegum lánahreyfingum. Seðlabankinn hefur nú samræmt gögn um útlán og niðurfærslur bankanna þriggja sem urðu til í október 2008. Þessi samræming leiðir til þess að höfuðstóll útlána þessara þriggja aðila hækkar, frá fyrri birtingu gagnanna, ásamt framlagi á niðurfærslureikning þeirra.
Mest lesið Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Neytendur „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Malasar í samstarf við GreenFish Viðskipti innlent Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Viðskipti erlent Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Viðskipti erlent Verðbólgan verði þrálát út árið Viðskipti innlent Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Fleiri fréttir „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Sjá meira
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent