Viðskipti innlent

Dregur úr atvinnuleysi

Skráð atvinnuleysi í september var 6,6 prósent en að meðaltali voru 10.759 atvinnulausir þann mánuðinn og fækkaði atvinnulausum um 535 að meðaltali frá ágúst eða um 0,1 prósentustig. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem birtar hafa verið á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

„Körlum á atvinnuleysisskrá fækkaði um 249 að meðaltali og konum um 286," segir í tilkynningu, en atvinnulausum fækkaði um 379 á höfuðborgarsvæðinu og um 156 á landsbyggðinni. „Atvinnuleysið var 7,6% á höfuðborgar-svæðinu en 4,9% á landsbyggðinni. Mest var það á Suðurnesjum 10,7%, en minnst á Norðurlandi vestra 2,1%. Atvinnuleysið var 6,4% meðal karla og 6,8% meðal kvenna."

Í lok september voru alls 11.487 án atvinnu. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 9.675. „Fækkun atvinnulausra í lok septembermánaðar frá lokum ágúst nam 445, en 272 færri karlar voru á skrá og 173 færri konur m.v. ágústlok. Á landsbyggðinni fækkaði um 88 og um 357 á höfuðborgarsvæðinu."

Ennfremur segir að fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði er nú 6.842 og fækkar um 686 frá lokum ágúst og er um 60% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá í lok september. „Þeim sem verið hafa atvinnulausir í meira en eitt ár fækkar úr 4.645 í lok ágúst í 4.457 í september eða um 188."

Nánar má kynna sér tölurnar hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×