Horfði á hrunið með nýfæddan soninn í fanginu 17. október 2011 09:30 Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir „allt vera breytt" eftir hrunið og mikið verk vera fyrir höndum að endurreisa „gömul gildi" til vegs og virðingar. Þetta kemur fram í grein eftir Ragnheiði Elínu í tilefni af því að rúm þrjú ár eru nú liðin frá hruni bankakerfisins. Í greininni rekur hún hvernig hún upplifði hrunið og atburðina sem í kjölfarið fylgdu. Hún eignaðist barn sama dag og forsvarsmenn Glitnis gengu á fund í Seðlabanka Íslands vegna fjármögnunarvanda bankans. Orðrétt segir Ragnheiður Elín í greininni: „Fimmtudaginn 25. september 2008, daginn sem Glitnismenn gengu á fund Seðlabanka Íslands til að leita eftir aðstoð ríkisins við fjármögnunarvanda bankans, eignaðist ég son. Fundur þessi markaði á vissan hátt upphaf örlagaríkrar atburðarrásar sem margir hafa lýst sem hvirfilbyl, holskeflu…eða sem upphafinu að íslenska bankahruninu. Fyrir mér markaði þessi dagur upphaf nýs lífs og var sannkallaður hamingjudagur. Jafnvel á því hamingjuskýi sem ég sat á með litla barnið mitt komst ég ekki hjá því að skynja að eitthvað væri í aðsigi. Fréttirnar voru þannig, óvissa, kvíði og alvara í loftinu. Og þess vegna mætti ég á þingflokksfund um miðnætti sunnudaginn 5. október, daginn fyrir setningu neyðarlaganna, aðeins tíu dögum eftir fæðingu sonar míns. Og þess vegna kom ég líka í þingið 6. október og stóð í hliðarsal þegar mælt var fyrir neyðarlögunum. Ég gat einhvern veginn ekki haldið mig fjarri." Ragnheiður segir að bankahrunið sé aðeins hluti af mun umfangsmeiri samfélagsbreytingu, sem atburðirnir í október 2008 mörkuðu. Hún segir alla þurfa að leggjast á eitt við að hefja góð og samfélagslega mikilvæg gildi til vegs og virðingar á nýjan leik. „En það er í okkar höndum að ákveða hvort við breytum til baka og hefjum gömul gildi aftur til vegs og virðingar, fögnum því góða sem við áttum hér og eigum að mörgu leyti enn og tökum á ný upp þá meginreglu að sýna hvert öðru virðingu og kurteisi. Ég er til." Grein Ragnheiðar Elínar má sjá hér.
Mest lesið Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Viðskipti erlent Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur Komin með ný nöfn Viðskipti innlent Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Sjá meira