Virðingarleysi "fyrir lögum og reglum“ 18. október 2011 09:30 Oddný G. Harðardóttir, þingkona Samfylkingarinnar.
Oddný G. Harðardóttir, þingkona Samfylkingarinnar, segir að íslensk stjórnsýsla hafi verið vanbúin til þess að takast á þá atburði sem skóku landið haustið 2008. Alltof lítil festa hafi einkennt samskipti innan stjórnsýslunnar sem og „virðingarleysi fyrir lögum og reglum". Þetta kemur fram í grein sem Oddný skrifar í tilefni af því að um þrjú ár eru nú liðin frá falli bankanna. Í greininni segir m.a. orðrétt: „Því hefur verið haldið fram að stuttar boðleiðir í litlu landi geti verið kostur, mál gangi hratt fyrir sig og það sé oftast gott en sérstaklega í viðskiptum. Vegna smæðarinnar flýti kunningjatengsl fyrir ferlinu og það sé vel. Við höfum búið við virðingarleysi fyrir lögum og reglum og skilningsleysi á hvað felist í að vera fámenn þjóð. Þetta hefur valdið því að mikið er um óformleg samskipti í stjórnsýslu okkar." Oddný segir enn fremur að mikill árangur hafi náðst við að koma ríkisfjármálum í betra horf á síðustu þremur árum. Á honum sé hægt að byggja. „Nú þremur árum síðar höfum við náð mjög góðum árangri í ríkisfjármálum og treyst umgjörð fjármálafyrirtækja og stjórnsýslu. Annað og krefjandi verkefni er styttra á veg komin. Það er uppbygging samfélagsins, uppgjör og sáttargjörð. Dómstólar eiga eftir að fjalla um hugsanleg efnahagsbrot . Slíkt tekur vissulega tíma og við verðum að hafa skilning á því. Við þurfum að geta hætt að líta reið um öxl og halda áfram jákvæðri uppbyggingu til framtíðar í anda réttlætis og jöfnuðar. Góð gildi, sanngirni, réttsýni og virðing þurfa að vera okkar leiðarljós þannig að við náum að vinna saman sem þjóð. Og traust þarf að vinna að nýju." Grein Oddnýjar má nálgast hér.
Tengdar fréttir Höfum við lært eitthvað? Hvað höfum við lært af hruni efnahags landsins haustið 2008 og af áhrifum þess á íslenskt samfélag? Hvað hefur breyst og hvaða umbótum höfum við náð fram? Á síðastliðnum þremur árum höfum við farið í umfangsmiklar og nauðsynlegar aðgerðir í ríkisfjármálum, skorið niður kostnað við þjónustu ríkisins, sameinað stofnanir og verkefni, hagrætt og varið velferðarþjónustuna eins og mögulegt er við þessar erfiðu aðstæður. 18. október 2011 09:15 Mest lesið Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Neytendur „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Malasar í samstarf við GreenFish Viðskipti innlent Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Viðskipti erlent Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Viðskipti erlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Verðbólgan verði þrálát út árið Viðskipti innlent Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Sjá meira
Höfum við lært eitthvað? Hvað höfum við lært af hruni efnahags landsins haustið 2008 og af áhrifum þess á íslenskt samfélag? Hvað hefur breyst og hvaða umbótum höfum við náð fram? Á síðastliðnum þremur árum höfum við farið í umfangsmiklar og nauðsynlegar aðgerðir í ríkisfjármálum, skorið niður kostnað við þjónustu ríkisins, sameinað stofnanir og verkefni, hagrætt og varið velferðarþjónustuna eins og mögulegt er við þessar erfiðu aðstæður. 18. október 2011 09:15
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent