Sigríður ráðin til Seðlabanka Íslands 18. október 2011 12:55 Sigríður Benediktsdóttir.
Sigríður Benediktsdóttir hefur verið ráðin til Seðlabanka Íslands sem framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika. Frá þessu var greint á vef Seðlabankans í dag. Sigríður lauk BS-prófi í hagfræði í Háskóla Íslands 1995 og BS-prófi í tölvunarfræðum frá sama skóla 1998. Sigríður lauk doktorsprófi í hagfræði frá Yale-háskóla í maí 2005. Frá því árið 2007 hefur Sigríður starfað sem kennari og aðstoðarmaður deildarforseta við hagfræðideild Yale-háskóla í Bandaríkjunum. Samhliða því hefur hún stundað rannsóknir á sviði fjármálahagfræði, með áherslur á fjármálamarkaði. Hún starfaði sem hagfræðingur hjá Seðlabanka Bandaríkjanna á árunum 2005-2007 og sem verkefnisstjóri og ráðgjafi hjá Hugviti hf. 1997-1998. Á árunum 1995-1997 var Sigríður hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og var sumarstarfsmaður hjá Seðlabanka Íslands 1992,1993 og 1995. Sigríður var skipuð í rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið árið 2008. Við ákvörðun um ráðningu var litið til reynslu og þekkingar Sigríðar á sviði fjármála og hagfræði, bæði á fræðasviðinu og úr starfi, auk víðtækrar þekkingar sem hún hefur aflað sér með starfi í rannsóknarnefnd Alþingis, að því er segir í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands. Fjármálastöðugleiki er nýtt svið innan Seðlabanka Íslands en núverandi fjármálasviði hefur verið skipt upp í tvær einingar, fjármálstöðugleika og greiðslukerfi. Meginviðfangsefni sviðsins felast í greiningu á áhættu í fjármálakerfinu og þátttöku í mótun varúðarreglna fyrir fjármálakerfið. Sviðið tekur þátt í stefnumótun varðandi uppbyggingu fjármálakerfisins og varðandi markmið, tæki og skipulag fjármálastöðuleika á Íslandi. Svið á í miklum samskiptum við stofnanir sem starfa að fjármálastöðugleika á Íslandi, einkum Fjármálaeftirlitið, en er einnig þátttakandi í umtalsverðu alþjóðlegu samstarfi.
Mest lesið Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira